María var að flýta sér í heiminn og fæddist á fyrsta degi nýja ársins 2004, 8 dögum fyrir tímann.
Hún var 15 merkur og 53 cm við fæðingu, brún og sæt með dökkt hár.
Óðinn flýtti sér aðeins minna, fæddist þann 9. mars 2008, 3 dögum fyrir tímann.
Hann var 14 merkur og 52 cm við fæðingu, alveg eins og systir sín nema með aðeins ljósara hár :)
Mamma okkar heitir Harpa Hermannsdóttir og pabbi okkar Jón Gunnar Geirdal og eru þau heppnustu foreldrar í heimi!
